Stórsýning tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð, Verk og vit 2008, var haldin í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal 17.-20. apríl 2008. Markmið sýningarinnar var að kynna fagmennsku, aukna þekkingu og tækninýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð og hin miklu umsvif sem eru á þessu sviði atvinnulífsins og tengdum greinum á Íslandi.
Verk og vit 2008 var framhald Verks og vits 2006, sem haldin var í Laugardalshöll í mars 2006 við mjög góðar undirtektir. Samkvæmt viðhorfskönnun, sem AP sýningar létu gera meðal þátttakenda, töldu 94% þeirra sem tóku þátt í könnuninni grundvöll fyrir því að halda sýninguna Verk og vit aftur og tæp 90% voru mjög ánægðir eða frekar ánægðir með sýninguna. Þá töldu um 80% sýnenda að markmiðum þeirra hefði verið náð með þátttöku fyrirtækis þeirra í sýningunni.