Góð mæting á kynningarfund

Góð mæting var á kynningarfund um Verk og vit sem haldinn var í Laugardalshöllinni þriðjudaginn 30. október síðastliðinn. Fulltrúar um 40 fyrirtækja mættu á fundinn til þess að fræðast um Verk og vit 2008.

Margit Elva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar, sagði frá skipulagningu og undirbúningi sýningarinnar, kynningarmálum og sýningarkerfum svo eitthvað sé nefnt. Á meðan Margit fór yfir málin gæddi fólk sér á gómsætum morgunverði og lét fara vel um sig.

Samstarfsaðilar