AP sýningar sjá um framkvæmd Verks og vits 2008. Starfsmenn fyrirtækisins hafa áralanga reynslu í stjórnun viðburða og er skemmst að minnast stórsýninganna Verk og vit 2006 og Tækni og vit 2007, sem þóttu takast með eindæmum vel. AP sýningar eru í eigu AP almannatengsla, sem munu jafnframt vinna að kynningu sýningarinnar og öðrum viðburðum tengdum henni.
AP almannatengsl bjóða upp á heildarþjónustu viðburða og veita ráðgjöf um gerð framkvæmda- og kostnaðaráætlana, val á fundarstað/aðstöðu, tæknileg atriði og útfærslu, hafa umsjón með skráningu þátttakenda, hönnun og gerð fundargagna, sjá um fjármál ráðstefna, uppgjör o.fl. Undirbúningur viðburða er oft langt og margbrotið ferli og er því mikilvægt að vel sé haldið utan um undirbúning og skipulagningu.
 |
|
 |
|
Verk og vit 2006 |
|
Tækni og vit 2007 |
Framkvæmdastjóri AP sýninga er Margit Elva Einarsdóttir, s. 511 1230, netfang gitta@appr.is.