Sýnendur ánægðir með Verk og vit 2008

Um 85% sýnenda sögðust ánægð með sýninguna Verk og vit 2008 í viðhorfskönnun meðal sýnenda sem unnin var af Outcome-hugbúnaði ehf. fyrir AP sýningar. Þar kom einnig fram að 92% sýnenda telja grundvöll fyrir því að Verk og vit verði haldin aftur.

Könnun Outcome var send til allra sýnenda í maí og var svarhlutfall um 70%. Meðal annarra helstu niðurstaðna var að 67%  sýnenda töldu sig hafa náð markmiðum sínum með þátttökunni mjög vel eða frekar vel.

Eins og sjá má af yfirgnæfandi meirihluta þeirra sem telja grundvöll fyrir því að Verk og vit verði haldin aftur hefur sýningin fest sig í sessi sem lykilviðburður í byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð á Íslandi. Flestir virðast jafnframt hlynntir því að láta tvö ár líða milli sýninga, því 70% svarenda sögðst hlynnt því að næsta sýning yrði haldin árið 2010.

Góður rómur var jafnframt gerður að opnunartíma Verks og vits 2008, þar sem um 80% voru ánægð með fyrirkomulagið sem var nú. Sýningin var opin fagaðilum á fimmtudegi og föstudegi, en almenningur boðinn velkominn laugardag og sunnudag. Um 83% töldu jafnframt að heppilegast væri að halda sýninguna í mars eða apríl.

Sýningin Verk og vit var nú haldin í annað sinn dagana 17.-20. apríl sl. Um 18.000 gestir sóttu sýninguna í Laugardalshöll þar sem um 100 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög kynntu vörur sínar og þjónustu.

AP sýningar, dótturfyrirtæki AP almannatengsla, var framkvæmdaraðili Verks og vits 2008. Samstarfsaðilar voru iðnaðarráðuneyti, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, Landsbankinn og Ístak.

Samantekt frá sýningunni, myndir og fleira má finna með því að smella hér. (PowerPoint; 3,4 MB)

Samstarfsaðilar