Sýnendur ánægðir með Verk og vit 2008
12 júní 2008
Um 85% sýnenda sögðust ánægð með sýninguna Verk og vit 2008 í viðhorfskönnun meðal sýnenda sem unnin var af Outcome-hugbúnaði ehf. fyrir AP sýningar. Þar kom einnig fram að 92% sýnenda telja grundvöll fyrir því að Verk og vit verði haldin aftur.
Góð aðsókn að Verki og viti 2008
21 apríl 2008
Mikill áhugi fagaðila og almennings á byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum sýndi sig á Verki og viti 2008, því um 18.000 gestir heimsóttu sýninguna. Á Verki og viti 2008, sem haldin var 17.-20. apríl í Laugardalshöll, kynntu um 100 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög vörur sínar og þjónustu.
Línuhönnun með athyglisverðasta sýningarrýmið á Verki og viti 2008
19 apríl 2008
Nú síðdegis voru kynntar niðurstöður dómnefndar á vegum skipuleggjenda á vali athyglisverðustu sýningarrýmanna á Verki og viti 2008 og var það fyrirtækið Línuhönnun sem bar sigur úr býtum. Í öðru sæti var BM Vallá, Áltak í þriðja sæti og Borg fékk sérstök aukaverðlaun.
Stórsýningin Verk og vit 2008 opnuð fyrir almenning
19 apríl 2008
Stórsýningin Verk og vit 2008 hefur verið opnuð fyrir almenning, en sýningin hefur verið opin fyrir fagaðila í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum frá því á fimmtudag.
Vel heppnuð ráðstefna um skipulagsmál
18 apríl 2008
Vel á annað hundrað manns sóttu ráðstefnu um skipulagsmál og fasteignamarkaðinn sem var haldin í Laugardalshöll fimmtudaginn 17. apríl í tengslum við sýninguna Verk og vit 2008. Markmið ráðstefnunnar var að varpa ljósi á þróun skipulagsmála og horfur. Var m.a. fjallað um rekstur fasteigna, skipulagsmál, fjármögnun og nýjar framkvæmdir.
Iðnaðarmenn framtíðarinnar etja kappi í Laugardalshöll
18 apríl 2008

Íslandsmót iðngreina hófst í morgun í gömlu Laugardalshöllinni. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra setti mótið kl. 11 og stendur það til kl. 18 í dag, föstudag, og kl. 9-18 á morgun, laugardag.
Sýningin Verk og vit í fullum gangi í Laugardalshöll
18 apríl 2008

Fjölmenni var á opnunarhátíð stórsýningarinnar Verks og vits 2008 í gær í Laugardalshöllinni. Kristján L. Möller samgönguráðherra klippti á borða og leiddi gesti inn á sýningarsvæðið þar sem hver stórviðburðurinn rak annan.
Samgönguráðherra opnar stórsýninguna Verk og vit 2008
17 apríl 2008
Verk og vit 2008 var opnuð nú síðdegis í Laugardalshöllinni. Það var Kristján L. Möller samgönguráðherra sem klippti á borða og leiddi gesti inn á sýningarsvæði þar sem um 100 sýnendur sem tengjast byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum munu næstu daga kynna vörur sínar og þjónustu.
Á fjórða hundrað vinna við uppsetningu Verks og vits
16 apríl 2008
Það hefur verið handagangur í öskjunni í Laugardalshöllinni síðustu daga, þar sem á fjórða hundruð manns hafa lagt nótt við dag við uppsetningu Verks og vits.
Tímarit Verks og vits komið út
16 apríl 2008

Tímarit sýningarinnar Verk og vit 2008 kom út fyrir skömmu, en því var dreift með Viðskiptablaðinu og verður jafnframt í boði fyrir gesti sýningarinnar. Áhugasamir geta einnig nálgast tímaritið á stafrænu formi hér á vefnum.
Ráðstefna: Skipulag eða stjórnleysi?
07 apríl 2008
Ráðstefna um skipulagsmál og fasteignamarkaðinn verður haldin í Laugardalshöll fimmtudaginn 17. apríl í tengslum við Verk og vit 2008. Yfirskrift ráðstefnunnar er Skipulag eða stjórnleysi og er markmið hennar að varpa ljósi á þróun skipulagsmála og horfur.
Sýningarsvæði á Verk og vit 2008 uppselt
04 apríl 2008
Sýningarsvæði stórsýningarinnar Verk og vit 2008 er nú uppselt. Um 100 sýnendur taka þátt í Verki og viti 2008 og stefnir í að sýningin verði sú veglegasta sem haldin hefur verið á þessu sviði hér á landi.
Um 100 sýnendur taka þátt í stórsýningunni Verk og vit 2008
14 mars 2008
Um 100 sýnendur hafa nú skráð sig til leiks á stórsýningunni Verki og viti 2008, sem er tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum, mannvirkjagerð og ýmsum tengdum greinum, og stefnir í að hún verði sú veglegasta sem haldin hefur verið á þessu sviði á Íslandi.
AP sýningar í samstarf við Tækjaleigu Nýherja og Luxor
06 mars 2008
AP sýningar og Tækjaleiga Nýherja og Luxor hafa gert með sér samkomulag þess efnis að fyrirtækið býður sýnendum Verks og vits 2008 tilboðspakka á tækjabúnaði meðan á sýningu stendur.
Skipulagsfundir með sýnendum
14 febrúar 2008
Nú líður senn að sýningu og því boðum við til skipulagsfundar sem verður haldinn miðvikudaginn 20. febrúar kl. 8:30 í sal 1 (bíósal) í Laugardalshöllinni.
Markmið fundarins er að fara yfir stöðu mála varðandi skipulag bása, uppsetningar o.fl.
Íslandsmót iðngreina haldið samhliða Verki og viti
05 febrúar 2008
Iðnmennt stendur fyrir Íslandsmóti iðngreina föstudaginn 18. og laugardaginn 19. apríl nk. í anddyri gömlu Laugardalshallarinnar. Markmið Íslandsmóts iðngreina er að auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar, kynna þær almenningi – ekki síst ungu fólki – og vekja athygli á þeim tækifærum sem felast í námi og starfi í iðngreinum.
Styttist í Verk og vit
25 janúar 2008
Nú er dag farið að lengja á ný og það þýðir bara eitt. Það styttist í Verk og vit 2008 en sýningin mun standa frá fimmtudeginum 17. apríl til sunnudagsins 20. apríl.
Gleðileg jól
20 desember 2007
Um leið og starfsmenn Verks og vits 2008 þakka frábærar móttökur íslenskra byggingar- og þekkingarfyrirtækja og stofnana síðustu vikur viljum við óska öllum gleðilegs nýs árs.
Fjölbreytni á Verk og vit 2008
05 desember 2007
Það er óhætt að segja að Verk og vit 2008 verði fjölbreytt sýning en tæplega 60 fyrirtæki hafa skráð sig til leiks og koma þau úr hinum ýmsu geirum atvinnulífsins. Þar má nefna byggingarverktaka, steypustöðvar, byggingarvöruverslanir, verkfræðistofur, öryggisfyrirtæki, fjármálafyrirtæki, iðnskóla, olíufyrirtæki og plastframleiðendur.
AP sýningar og ATH markaðslausnir í samstarf
21 nóvember 2007
AP sýningar hafa gert samkomulag við ATH markaðslausnir um að fyrirtækið veiti sýnendum Verks og vits 2008 hagstæð tilboð í þjónustu og prentun fyrir sýninguna.
Tæp 75% sýningarsvæðis selt
09 nóvember 2007
Sala sýningarsvæðis á Verk og vit 2008 gengur mjög vel og nú þegar er tæplega 75% sýningarsvæðisins selt þrátt fyrir að sex mánuðir séu enn í sýningu. Um 50 fyrirtæki eru skráð til leiks og koma þau úr hinum ýmsu geirum atvinnulífsins og má þar nefna byggingarverktaka, steypustöðvar, byggingarvöruverslanir, verkfræðistofur, öryggisfyrirtæki, fjármálafyrirtæki, iðnskóla, olíufyrirtæki, plastframleiðendur o.fl.
Góð mæting á kynningarfund
06 nóvember 2007
Góð mæting var á kynningarfund um Verk og vit sem haldinn var í Laugardalshöllinni þriðjudaginn 30. október síðastliðinn. Fulltrúar um 40 fyrirtækja mættu á fundinn til þess að fræðast um Verk og vit 2008.
Opinn kynningarfundur um Verk og vit 2008
17 október 2007
Þriðjudaginn 30. október nk. verður haldinn opinn kynningarfundur um Verk og vit 2008 þar sem fjallað verður almennt um sýninguna, skipulagningu hennar, undirbúning og framkvæmd. Fundurinn verður haldinn í Laugardalshöll, sal 1, og hefst hann kl. 9:00.
Sala sýningarsvæða gengur vel
26 september 2007
Þegar sjö mánuðir eru í sýninguna Verk og vit 2008 hafa 55% sýningarsvæðisins verið seld. Viðtökur hafa verið mjög góðar og hafa 40 fyrirtæki úr hinum ýmsu geirum atvinnulífsins þegar skráð sig til leiks 17.-20. apríl 2008.
40% sýningarsvæðis þegar seld
11 júlí 2007
Eftirspurn hefur verið mikil eftir sýningarsvæði á sýningunni Verk og vit 2008. Nú þegar er búið að selja 40% sýningarrýmisins. Áhugi sýnenda sem tóku þátt í Verki og viti 2006 er greinilega mikill og hafa margir þeirra nú þegar fest sér svæði á Verk og vit 2008.
Stórsýningin Verk og vit 2008
08 júní 2007
Stórsýningin Verk og vit verður haldin í annað skipti dagana 17.-20. apríl 2008 í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Verk og vit 2008 er sjálfstætt framhald sýningarinnar Verks og vits 2006, sem haldin var á sama stað í mars 2006 á vegum AP sýninga.