Mörg stærstu fyrirtæki og félög í byggingariðnaði tóku þátt í sýningunni 2006 og er óhætt að segja að almenn ánægja sé með hvernig til tókst. Hér á eftir eru ummæli nokkurra sýnenda:
|
„Sýningin Verk og vit 2006 var stórglæsileg og þjónaði vel sínum tilgangi. Ég hef áður hannað og sett upp sýningar hér heima og erlendis og ef eitthvað er þá held ég að betur hafi verið staðið að þessari sýningu. Reglulegir fundir og kynningar fyrir sýnendur hjálpuðu mjög við alla skipulagningu ásamt því að greinargóð og skjót svör voru gefin við fyrirspurnum.“
Friðleifur Kristjánsson, gæða- og þróunarstjóri Smellinn. |
|
|
Sýningin Verk og vit á vordögum 2006 heppnaðist sérlega vel. Það var mikill akkur fyrir skólann að taka þátt í sýningunni og kynna starfsemi sína og mynda tengsl við iðnaðarmenn og fyrirtæki sem að sýningunni komu. Þátttaka í sýningunni gaf nemendum í ýmsum deildum skólans tækifæri til að vinna saman að hönnun og smíði sýningarbássins og hápunkturinn var að skólinn fékk verðlaun fyrir sinn bás.
Baldur Gíslason, skólameistari Iðnskólans í Reykjavík. |
|
ÍSTAK tók þátt í sýningunni Verk og vit 2006 og vorum við einstaklega ánægð með útkomuna. Mikill metnaður einkenndi sýninguna bæði hjá sýnendum og skipuleggjendum. Aðstaðan í Laugardalshöllinni er mjög góð og hentar vel fyrir sýningar af þessu tagi. Sýningin var mjög áhugaverð bæði fyrir okkur sem fagaðila sem og einstaklinga og eigum við án efa eftir að taka þátt aftur.
Teitur Ingi Valmundsson, fjármálastjóri ÍSTAKS. |
|
|
„Okkur hjá MEST fannst sýningin takast með eindæmum vel og þessi sýning, ef framhald verður á, verður ein öflugasta fagsýning sem haldin er á Íslandi. Allur aðbúnaðar, utanumhald sem og metnaður sýnenda var á heimsmæli-kvarða og munum við hjá MEST verða fyrst til að boða þátttöku okkar ef framhald verður á Verki og viti.“
Þórður Birgir Bogason, forstjóri MEST. |
Sendiráð Kanada leigði bás á Verki og viti 2006 og vorum við mjög ánægð með árangurinn og samstarfið. Hrósa ber sýningarstjórninni fyrir sérlega góða þjónustu við sýnendur. Var byrjað með reglulega fundi stax í desember 2005 og allt sem beðið var um var leyst skjótt og með bros á vör. Veit ekki, held ekki, get ekki er ekki til í orðasafni AP sýninga.
Kristbjörg Ágústsdóttir, viðskiptafulltrúi við Sendiráð Kanada. |
|
|
„Við hjá Samtökum iðnaðarins erum mjög ánægð með viðtökurnar sem Verk og vit 2006 fékk, bæði meðal félagsmanna okkar sem og meðal almennra gesta. Sýningin var öll hin glæsilegasta og aðstaðan í Laugardalshöll með besta móti.“
Brynjar Ragnarsson, markaðsstjóri Samtaka iðnaðarins. |