Góð mæting á kynningarfund

Góð mæting var á kynningarfund um Verk og vit sem haldinn var í Laugardalshöllinni þriðjudaginn 30. október síðastliðinn. Fulltrúar um 40 fyrirtækja mættu á fundinn til þess að fræðast um Verk og vit 2008.

Stærsta sýning sem haldin hefur verið um byggingariðnað, skipulagsmál og mannvirkjagerð á Íslandi

Stórsýningunni Verki og viti 2006, sem haldin var 16. til 19. mars í Laugardalshöllinni, lauk sl. sunnudag. Mjög góð aðsókn var að sýningunni alla sýningardagana og voru gestir tæplega sautján þúsund.

Athyglisverðar ráðstefnur um fasteignamarkaðinn og útboðsmál

Áður en stórsýningin Verk og vit 2006 var opnuð formlega sl. fimmtudag, 16. mars, í Laugardalshöllinni voru haldnar tvær ráðstefnur, önnur um fasteignamarkaðinn og hin um útboðsmál. Fjölmenni var á báðum ráðstefnunum.

Tæplega 17.000 gestir sóttu Verk og vit

Stórsýningunni Verki og viti 2006, sem haldin var 16.-19. mars er lokið. Aðsókn á sýninguna var mjög góð alla sýningardagana en tæplega sautján þúsund gestir sóttu hana.

Mikill fjöldi fólks sótt Verk og vit í dag

Stöðugur straumur fólks hefur lagt leið sína í Laugardalshöllina í dag, laugardag, til þess að skoða stórsýninguna Verk og vit. Margir hafa komið að máli við skipuleggjendur og hrósað sýningunni sem hinni glæsilegustu sem þeir hafi sótt.

Sýningarbás Smellinn hf. valinn sá athyglisverðasti

Sýningarbás fyrirtækisins Smellinn hf. á Akranesi var valinn athyglisverðasti básinn á stórsýningunni Verk og vit sem fram fer í Laugardalshöll nú um helgina. Smellinn reisti lítið hús úr forsteyptum einingum á sýningarsvæðinu sem þykir endurspegla sérlega vel framleiðslu og vöruframboð fyrirtækisins.

Stöðug aukning niðurrifs bygginga

Aldrei hafa fleiri byggingar verið jafnaðar við jörðu í Reykjavík en árið 2005. Niðurrif bygginga í borginni hefur aukist jafnt og þétt frá 2001. Byggingaúrgangur og uppgröftur er meiri en allt almennt sorp í Reykjavík. Þetta kemur fram í erindi sem Erpur Snær Hansen hjá Mengunarvörnum Reykjavíkur flytur á ráðstefnunni Verk og vit á morgun, laugardag.

Stórsýningin Verk og vit 2006 opnuð í Laugardalshöll

Stórsýningin Verk og vit 2006 var opnuð af Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, við hátíðlega athöfn í nýju íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal í gær, fimmtudag. Ráðherra sagði að við lifðum á mesta framfaraskeiði í sögu þjóðarinnar þar sem gríðarlegar fjárfestingar ættu sér stað við uppbyggingu á öllum sviðum.

Vel heppnaðar ráðstefnur

Báðum ráðstefnunum sem haldnar eru í dag er lokið. Hvert sæti var skipað og gerðu fundarmenn góðan róm að máli ræðumanna.

Uppselt á ráðstefnur um útboðsmarkað og fasteignamarkaðinn

Mikill áhugi er fyrir þeim ráðstefnum og kynningum sem í boði verða á Verki og viti 2006. Til marks um það er uppselt á ráðstefnu Samtaka iðnaðarins, Heilbrigður útboðsmarkaður? og ráðstefnu um þróun fasteignamarkaðarins og rekstur fasteigna.

Athyglisverðustu sýningarbásarnir

Viðurkenningar fyrir athyglisverðustu sýningarbásana á sýningunni Verk og vit 2006 verða afhentar í sýningarbás AP almannatengsla, A1, á föstudag kl. 18:00. Veittar verða viðurkenningar fyrir 1., 2. og 3. sæti.

Uppsetning sýningarinnar í fullum gangi

Það styttist í að stóra stundin renni upp - opnun Verks og vits 2006 fimmtudaginn 16. mars. Mikið er um að vera í Laugardalshöllinni þessa dagana þar sem iðnaðarmenn og fjöldi annarra leggja nótt við dag við undirbúning sýningarinnar.

Veglegt sérblað Verks og vits 2006

AP almannatengsl hafa gefið út sérblað í tengslum við stórsýninguna Verk og vit 2006. Blaðið, sem er hið veglegasta, er 76 blaðsíður að stærð. Upplag blaðsins er 30.000 eintök og hefur þegar verið dreift til um 4.000 manna markhóps. Sýningargestir geta nálgast blaðið á sýningunni.

Stærsta sýning sem haldin hefur verið um byggingariðnað, skipulagsmál og mannvirkjagerð

Stórsýningin Verk og vit 2006 verður haldin 16. til 19. mars í nýju íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal. Á sýningunni munu um 120 fyrirtæki í byggingariðnaði og mannvirkjagerð, sveitarfélög, hönnuðir og ráðgjafar kynna starfsemi sína.

Heilbrigður útboðsmarkaður? - Ráðstefna SI

Samtök iðnaðarins (SI) efna til ráðstefnu um útboðsmál við verklegar framkvæmdir fimmtudaginn 16. mars frá kl. 14:00 til 16:30 á Verk og vit 2006. Framsögumenn koma víða að en m.a. verður fjallað um lausn ágreiningsmála, ábyrgðir í mannvirkjagerð, útboðsskilmála, útboðsgögn og viðhorf eftirlitsaðila.

Ráðstefna um þróun fasteignamarkaðarins og rekstur fasteigna

Ráðstefna um þróun fasteignamarkaðarins og rekstur fasteigna verður haldin í Nýju íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal fimmtudaginn 16. mars. Ráðstefnan er haldin í tengslum við stórsýninguna Verk og vit 2006 sem verður í Laugardalshöll dagana 16.-19. mars.

Námstefna haldin um árangursríkari vörusýningar

Námstefnan „Árangursríkari vörusýningar" var haldin fyrir alla sýnendur í boði Verks og vits 2006 mánudaginn 6. febrúar sl. Á námstefnunni var farið ofan í saumana á því hvernig best sé staðið að framkvæmd vörusýninga þannig að sem mestur árangur náist.

Einungis 15% sýningarrýmis óráðstafað

Skráðir þátttakendur á Verk og vit 2006 eru orðnir um eitt hundrað talsins. Er um fjölbreyttan hóp sýnenda að ræða, bæði innlenda og erlenda. Aðeins er fimmtán prósent sýningarrýmisins óráðstafað en gólfflötur hinnar nýju Laugardalshallar er um 5.000 fermetrar.

Skipulagsfundur með skráðum sýnendum

Skipulagsfundur vegna sýningarinnar Verk og vit 2006 verður haldinn í Laugardalshöllinni, fundarsal 2. hæð, mánudaginn 23. janúar nk. kl. 8:30 fyrir skráða sýnendur. Markmið fundarins er að miðla upplýsingum til ykkar um stöðu mála og hvað er framundan, uppsetningu sýningarkerfa með eða án skilrúma, ýmsar hagnýtar upplýsingar um tæknimál, raf- og nettengingar, tímasetningar o.fl.

Tæp 80% sýningarrýmis seld fyrir jól

Eftirspurn hefur verið mikil eftir sýningarplássi á Verk og vit 2006. Þegar jólahátíðin gekk í garð höfðu tæp 80% sýningarrýmis verið seld. Aðstandendur sýningarinnar eru að vonum ánægðir með þá athygli sem hin væntanlega sýning hefur hlotið.

Mjög góð þátttaka á kynningarfundi um Verk og vit 2006

AP sýningar héldu vel heppnaðan kynningarfund um Verk og vit 2006 í Laugardalshöllinni í dag, þriðjudaginn 6. desember, og var þátttaka mjög góð. Viðbrögð létu heldur ekki á sér standa og fjölgaði enn í hópi sýnenda.

Kynningarfundur í nýbyggingu Laugardalshallarinnar 6. desember

Kynningarfundur um stórsýninguna Verk og vit 2006 verður haldinn í nýbyggingu Laugardalshallarinnar nk. þriðjudag, 6. desember, kl. 8:15.

Mikill vöxtur í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð

Uppgangur hefur verið mikill í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð síðustu ár. Heildarvelta í fyrrnefndum geira hefur, skv. frétt í Viðskiptablaðinu 9. nóvember sl., vaxið úr rúmum 74,4 milljörðum króna árið 2002 í 116,4 milljarða árið 2004.

Yfir helmingur sýningarsvæðis seldur

Mikill áhugi er á sýningunni Verk og vit 2006 og hefur sala á sýningarrými gengið afar vel. Nú, fimm mánuðum fyrir opnun sýningarinnar, er þegar búið að bóka um 50% af sýningarrýminu. Til að bregðast við mikilli eftirspurn hefur sýningarsvæðið verið stækkað.

Verk og vit 2006 kynnt á Degi byggingariðnaðarins

AP sýningar taka þátt í sýningunni Dagur byggingariðnaðarins í Hafnarfirði, sem haldin verður nk. laugardag, 15. október, kl. 10-18. AP sýningar munu kynna stórsýninguna Verk og vit 2006 og verða með aðstöðu í bás númer 5.

Stórsýningin Verk og vit 2006 haldin 16.-19. mars

Stórsýningin Verk og vit 2006 verður haldin í nýju Íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal dagana 16.-19. mars 2006. Á sýningunni verður megináhersla lögð á fagmennsku, aukna þekkingu og tækninýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð. Íslenskur byggingariðnaður hefur verið í nær stöðugum vexti frá árinu 1998.

Kynningarfundur fyrir félagsmenn Samtaka iðnaðarins

AP sýningar bjóða félagsmönnum Samtaka iðnaðarins á opinn kynningarfund um Verk og vit 2006 kl. 8:15 árdegis fimmtudaginn 6. október nk. Fundarstaður er Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35, 6. hæð.
Samstarfsaðilar